Velkomin í Múmíndal

- Þar sem grasið er alltaf grænt!

21.07.2007 22:03:09 / eydís

Einhverntímann tekur allt enda!

Jæja, ég er með stórar fréttir. 

Ég vil fyrst þakka foreldrum Bjarna ásamt systkinum hans kærlega fyrir undanfarin 4 ár. Ég met þau mikils og vil bara þakka kærlega fyrir mig! Þið hafið oft reynst mér vel og ég er ykkur mjög þakklát!

Ég og Bjarni erum nefninlega hætt saman. Áður en að grátkórinn fer af stað vil ég benda fólki á að ég nenni ekki að fá hringingar og sms um þetta. Þetta var bara búið og nú taka nýjir tímar við. Ég vildi ekki hringja í alla símaskrána mína (væri frekar dýrt) til að tilkynna fólki þetta og valdi því þessa leið (geri ráð fyrir að hann sé búinn að tala við sitt fólk). Ég mun fara á námslán og fara að leigja með hópi af góðu fólki í vetur......og ég segi bara allt í fína, really. Sver að ég er ekki að ljúga ;)

Tilvitnun dagsins; "Jafnvel hin lengsta ferð hefst með einu skrefi"

Takk fyrir mig!


» 4 hafa sagt sína skoðun